Holdmæra (l. Sarcocystis) er frumudýr sem veldur sjúkdómi í fuglum sem kallast Sarcocystosis. Skotveiðimenn hafa hér á landi orðið varir við sjúkdóminn í bringuvöðva andfugla sem þeir hafa skotið en sníkjudýrið getur fundist í öllum grasbítum á Íslandi. Vefjaþolhjúpar sníkjudýrsins sjást oft í bringukjöti sýktra fugla og minna á hrísgrjón í útliti og hefur sjúkdómurinn þess vegna verið kallaður rice breast á ensku og hrísgrjónabrjóst á íslensku. Sníkjudýrið hefur ekki nein veruleg heilsufarsleg áhrif á fuglana og fer ekki yfir í fólk. Eldun á fuglunum drepur holdmærurnar en þessi sníkjudýr eru yfirleitt mjög hýsilsérhæfð.
Umhverfisstofnun óskar eftir tilkynningu frá veiðimönnum sem verða varir við hrísgrjónabrjóst í veiddum fuglum.