Landsáætlun um eftirlit skal skv. 54. gr. laga nr. 7/1998 gerð fyrir þá starfsemi sem tilgreind er í viðaukum laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Landsáætlun felur í sér samræmda skrá starfsemi sem fellur undir mengunar- og hollustuháttaeftirlit Umhverfisstofnunar og heilbrigðisnefnda. Í landsáætlun eru jafnframt settar fram verklagsreglur m.a. um samningu eftirlitsáætlana um reglubundið eftirlit sem byggir á kerfisbundnu áhættumati á mengunarhættu viðkomandi starfsemi.
Landsáætlun um eftirlit
Fylgiskjöl
Áætlun um reglubundið eftirlit Umhverfisstofnunar
Skv. 54. gr. laga nr. 7/19998 um hollustuhætti og mengunarvarnir skulu eftirlitsaðilar gera áætlun um reglubundið eftirlit. Í áætluninni er gerð grein fyrir áætluðu umfangi eftirlits fyrir þá starfsemi sem fellur undir I. og II. viðauka laga nr. 7/1998 og þar með eftirlit Umhverfisstofnunar. Í áætluninni er gerð grein fyrir innleiðingu kerfisbundins áhættumats til ákvörðunar á tíðni eftirlitsferða og áætlanagerð við umfang eftirlits í viðkomandi starfsemi.