Höfundur myndar: Kristinn Már Ársælsson
Í greinargerð sem fylgir fréttinni kemur fram að tillaga að starfsleyfi feli í sér að mælingar á losun álversins verða auknar á þungmálmum og PAH-efnum. Þá er ekki gert ráð fyrir auknum heimildum fyrirtækisins fyrir heildarlosun á flúor og eru framleiðslutengd losunarmörk því þrengd þannig að heimild fyrir heildarlosun flúors er ekki aukin.
Einnig má geta þess að niðurstaða Skipulagsstofnun vegna fyrirspurnar um matsskyldu framkvæmdarinnar var sú að hún er ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Tillagan mun liggja frammi ásamt umsóknargögnum á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar á tímabilinu 25. ágúst til 20. október 2015. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 20. október 2015. Athugasemdirnar eiga að vera skriflegar og þær skal senda til Umhverfisstofnunar (t.d. á netfangið ust@ust.is eða með bréfi). Öll gögn eru einnig aðgengileg á vefsíðu Umhverfisstofnunar, http://www.umhverfisstofnun.is/ .
Boðað er til opins kynningarfundar í Fannahlíð, Hvalfjarðarsveit, mánudaginn 31. ágúst kl. 17:00. Þar verður kynning á tillögunni og starfsleyfisveitingum Umhverfisstofnunar og loks opnað fyrir fyrirspurnir og umræður um þau atriði sem fundargestir vilja ræða varðandi starfsemina og áhrif álversins á umhverfið.