Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum

 

Útfærsla skuldbindinga í loftslagsmálum hér á landi tekur mið af alþjóðlegu og evrópsku regluverki.

Parísarsamningurinn er samkomulag undir rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál (e. United Nations Framework Convention on Climate Change; UNFCCC). Árið 2016 gekk Parísarsamningurinn um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum í gildi á heimsvísu. Ísland er aðili að rammasamningnum og hefur fullgilt Parísarsamninginn (af Alþingi í september 2016). Samningurinn setur lagalegan ramma utan um skuldbindingar ríkja. Markmið samningsins er að halda hækkun hitastigs jarðar undir 2°C miðað við meðalhitastig við upphaf iðnvæðingarinnar en jafnframt skuli leitast við að halda hækkuninni undir 1,5°C. Að auki miðar samningurinn að því að efla getu ríkja til að takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga með aðlögun og stuðningi þróaðra ríkja við þróunarríki og viðkvæmari lönd.

Samkvæmt samningnum skulu aðildarríkin setja sér markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, svonefnd landsákvörðuð framlög (Nationally Determined Contributions; NDCs).

Losun Íslands má almennt skipta í þrjá meginflokka þegar hún er skoðuð út frá skuldbindingum gagnvart ESB. Flokkarnir eru Samfélagslosun, landnotkun, og viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

  • Samfélagslosun inniheldur aðallega losun frá vegasamgöngum, landbúnaði, sjávarútvegi, jarðvarmavirkjunum, vörunotkun og úrgangi.
  • Undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir fellur losun frá stóriðju, flugi og skipaflutningum innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES).
  • Losun frá landnotkun á við um alla losun og alla bindingu vegna hvers konar landnotkunar.

 


Markmið ESB fyrir árið 2030, samkvæmt áðurnefndum meginflokkum, eru eftirfarandi:

  • Að draga úr losun frá uppsprettum sem falla undir samfélagslosun ríkjanna um 40% miðað við losun ársins 2005. Hvert ríki fær sér hlutdeildarmarkmið um samdrátt í losun.
  • Að ná 310 milljón tonna nettóbindingu frá uppsprettum sem flokkast undir landnotkun (sbr. reglugerð (ESB) 2018/841). Hvert ríki fær sér hlutdeildarmarkmið um samdrátt í  losun eða aukningu í bindingu.
  • Að draga úr losun frá uppsprettum sem falla undir viðskiptakerfið ESB um 62% miðað við losun ársins 2005.

Hlutdeildarmarkmið fyrir samfélagslosun Íslands hefur ekki verið staðfest en talið er líklegt að það feli í sér samdrátt í samfélagslosun um 41% árið 2030 miðað við losun árið 2005 (út frá þeim reiknireglum sem ESB notaði við úthlutun fyrri markmiða). Núverandi markmið um samdrátt í samfélagslosun er 29% árið 2030. 

Það markmið sem snýr að viðskiptakerfinu er samevrópskt og því er ekki gert ráð fyrir að einstök ríki fái samdráttarmarkmið innan kerfisins, heldur er kerfinu í heild ætlað að ná fram þessum samdrætti fyrir árið 2030. Fyrir losun og bindingu innan landnotkunar og samfélagslosunar fá ríkin hins vegar úthlutað hlutdeildarmarkmiði sem endurspeglar stöðu og getu ríkjanna til samdráttar.

Ekki liggur fyrir hvert hlutdeildarmarkmið Íslands fyrir uppfært landnotkunarmarkmið ESB verður en núverandi markmið er að nettólosun aukist ekki miðað við tiltekin viðmiðunartímabil.

Fyrir utan alþjóðlegar skuldbindingar hefur Ísland einnig lögfest landsmarkmið um að ná kolefnishlutleysi árið 2040. 

 

Kýótóbókunin

Fyrsta skuldbindingatímabilið 2008-2012

Ísland stóð við skuldbindingar sínar fyrir fyrsta viðskiptatímabil Kýótóbókunarinnar fyrir árin 2008–2012. Samkvæmt sérstakri ákvörðun Loftslagssamningsins (oft nefnd „íslenska ákvæðið“) var Íslandi þó heimilt að halda losun frá nýrri stóriðju eða stækkun stóriðjuvera utan við losunarskuldbindingar sínar.

Losun Íslands, fyrir utan losun frá stóriðju, alþjóðaflugi, alþjóðasiglingum og landnotkun og skógrækt, var rúmlega 23,36 milljón CO2-íg. á tímabilinu. Ísland gerði upp tæplega 20,10 milljón losunarheimildir og rúmlega 3,26 milljón voru tilkynntar sérstaklega undir íslenska ákvæðinu. Upplýsingar um uppgjör Íslands sem og annarra ríkja fyrir þetta fyrra skuldbindingatímabil má finna á vefsíðu UNFCCC.

Seinna skuldbindingatímabilið 2013-2020

Árið 2012 var haldinn samningafundur í Doha og var þar samþykkt breyting á Kýótóbókuninni sem kvað á um bindandi losunarmörk fyrir árin 2013-2020. Þetta átti við um alla losun nema losun frá alþjóðaflugi, alþjóðasiglingum, og landnotkun og skógrækt. Aðildaríki gátu þó nýtt bindingu kolefnis vegna landnotkunar og skógræktar við uppgjörið að einhverju leyti.

Samkvæmt breytingunni þurfti Ísland, í samfloti með ESB, að draga úr losun um 20% á tímabilinu 2013-2020 m.v. losun árið 1990. Samstarfið milli ESB og Íslands var tvíþætt. Annars vegar innleiddi Ísland regluverk um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (e. ETS). Hins vegar gerðu Ísland og ESB tvíhliða samning um samfélagslosun Íslands (áður kallað „losun á beinni ábyrgð Íslands “). Samkvæmt samningnum fékk Ísland úthlutað losunarheimildum sem jafngilda losun á rúmlega 15,33 milljón CO2-íg. á tímabilinu 2013-2020.

Samfélagslosun Íslands á þessu seinna tímabili reyndist 23,03 milljón CO2-ígildi eða 17% (3,40 milljón CO2-íg.) umfram losunarheimildirnar. Ísland þurfti því að kaupa losunarheimildir sem samsvöruðu 3,40 milljón CO2-íg. til að standast skuldbindingar sínar á seinna skuldbindingatímabilinu. Íslenska ríkið keypti losunarheimildir fyrir þennan mismun af Slóvakíu og voru þær millifærðar á reikning Íslands þann 31. ágúst 2023.

Þann 4. september 2023 framkvæmdi Umhverfisstofnun uppgjörið fyrir hönd Íslands þar sem gerðar voru upp 23.030.200 losunarheimildir.

Uppgjöri Íslands vegna Kýótóbókunarinnar er því lokið. Frekari upplýsingar um uppgjör Íslands fyrir seinna tímabil Kýótó-bókunarinnar má finna hér.


Hvernig er gagnaskilum háttað?

Árlega skilar Umhverfisstofnun Landsskýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda (National Inventory Report; NIR) til Evrópusambandsins og rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (United Nations Framework Convention on Climate Change; UNFCCC) í samræmi við skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum.

Losun frá alþjóðaflugi og alþjóðasiglingum er metin og kemur fram í losunarbókhaldinu en er ekki hluti af losun sem telur gagnvart alþjóðlegum skuldbindingum Íslands, nema losun sem kemur frá flugi og siglingum sem falla undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

Samkvæmt skuldbindingum Íslands gagnvart UNFCCC og samkomulagi Íslands og ESB um fyrirkomulag losunarbókhalds fyrir gróðurhúsalofttegundir eru gagnaskil á fyrri hluta hvers árs. Hér er farið nánar yfir þau skil og þær tímasetningar sem Íslandi hefur skuldbundið sig til að vinna eftir.

 Í síðasta lagi 31. júlí ár hvert ber að skila bráðabirgðatölum til ESB sem endurspegla losun ársins á undan. Gögnin teljast bráðabirgðagögn bæði vegna þess að gagnaveitendur hafa í mörgum tilfellum einungis skilað bráðabirgðagögnum til Umhverfisstofnunar á þessum tímapunkti og einnig vegna þess að þarna hafa útreikningarnir ekki farið í gegnum alla rýni, þ.m.t. úttekta- og gæðaferla, sem þarf að framkvæma áður en lokatölum er skilað.

 Í síðasta lagi 15. janúar ár hvert ber að skila bráðabirgðatölum til ESB fyrir öll árin (frá 1990 til og með árinu tveimur árum fyrir skil.). Þessi gögn eru búin að fara í gegnum gæðaferla hjá Umhverfisstofnun, en hafa ekki farið í rýni hjá sérfræðingum ESB.

 Í síðasta lagi 15. mars ár hvert ber að skila tölum og skýrslu til ESB fyrir öll árin (frá 1990 til og með árinu tveimur árum fyrir skil.). Þessi gögn eru búin að fara í gegnum úttekt á vegum ESB, og eru tölurnar uppfærðar í samræmi við athugasemdir úttektaraðila. Á sama tíma, annað hvert ár, ber einnig að skila upplýsingum um stefnur og aðgerðir í loftslagsmálum ásamt framreiknaðri losun gróðurhúsalofttegunda fram til ársins 2055.

Í síðasta lagi 15. apríl ár hvert ber að skila lokatölum og lokaskýrslu fyrir öll árin (frá 1990 til og með árinu tveimur árum fyrir skil.) til UNFCCC. Um leið og þeim er skilað eru öll gögn og skýrslur birtar á vefsíðu UNFCCC. Þessi skil teljast sem opinber lokaskil.

 Einnig ber að skila tölulegum upplýsingum og skýrslu um stöðu gagnvart Parísarsamningnum til UNFCCC. Skýrslan inniheldur m.a. upplýsingar um sögulega og framreiknaða losun, um stefnur og aðgerðir í loftslagmálum, um aðlögun að loftslagsbreytingum sem og um þróunaraðstoð í þágu loftslagsmála. Þessa skýrsla, sem ber heitið „Biannual Transparency Report“ verður skilað í fyrsta skipti í lok árs 2024 og er hún á ábyrgð Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.

 Sífellt er unnið að endurbótum á losunarbókhald Íslands til að auka gæði og áreiðanleika gagnanna og einnig er bókhaldið rýnt mjög reglulega af sérfræðingum UNFCCC. Þetta gerir það að verkum að stundum þarf að gera breytingar á tölum sem leiða til þess að skila þarf tölunum aftur til UNFCCC á milli hefðbundinna skila.