Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur breytt starfsleyfi Háskólans í Reykjavík, kt: 510105-4190, dags. 17. maí sl. fyrir afmarkaða starfsemi með erfðabreytta sebrafiska í starfsaðstöðu Tækni- og verkfræðideildar háskólans við Menntavegi 1, Reykjavík. Um er að ræða minniháttar breytingu á aðferðum erfðabreytingar og stofnum sebrafiska og var því ekki þörf á umsögnum frá ráðgjafanefnd um erfðabreyttar lífverur né Vinnueftirlitsins.
Leyfið var gefið út, dags. 16. desember 2015, í samræmi við ákvæði laga nr. 18/1996 um erfðabreyttar lífverur, reglugerðar nr. 276/2002 um afmarkaða notkun erfðabreyttra lífvera annarra en örvera, laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerðar nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun. Gildistími leyfis er óbreyttur eða til 16. desember 2020.

Skjöl:
Breytt starfsleyfi Háskólans í Reykjavík með greinagerð leyfis í fylgiskjali.