Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt


Umhverfisstofnun hefur borist umsókn Ísfélags Vestmannaeyja hf. fyrir fiskimjölsverksmiðju í Vestmannaeyjum, um breytingu á grein 2.9 í starfsleyfi. Lagt er til að mörk um losun í útblæstri og hraða frá olíubrennara gildi aðeins ef notkun olíubrennara er yfir 3% af keyrslutíma verksmiðju og að miðað verði við 9% súrefnisinnihald í stað 3% fyrir rykmörk olíubrennarans.