Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Undanfarin misseri hefur stofnunin unnið að endurskoðun gildandi starfsleyfa sem hafa að geyma ákvæði um þynningarsvæði loftmengunar. Tilefni endurskoðunar er breytingar á lögum um málefnið.

 

Tillagan felur í sér að afnema ákvæði um þynningarsvæði í starfsleyfi með því að gera breytingar á starfsleyfi Elkem á Grundartanga.

 

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfis- og orkustofnun uos@uos.is merktar UOS2502428.

 

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 4. júní 2025.

 

Tengd skjöl:

Tillaga að breytingu á starfsleyfi Elkem á Íslandi