Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Í næstu viku mun Umhverfisstofnun formlega opna fyrir umsóknir á skotvopna- og veiðikortanámskeið ársins 2023 og kynna breytingar á fyrirkomulagi sem miða að því að bæta enn frekar þjónustu við verðandi veiðimenn um land allt.

Skilyrði fyrir þátttöku

Á vormánuðum verða haldin tvö skotvopnanámskeið og er tilvonandi umsækjendum bent á að eitt af skilyrðum fyrir þátttöku er að hafa sótt sér læknisvottorð og skila því til lögreglu með rafrænni umsókn um heimild til þátttöku á námskeiðinu.  Það ferli getur tekið nokkurn tíma og er fólki bent á að finna sér tíma hjá lækni sem allra fyrst.

Tengt efni
Skotvopna- og veiðinámskeið