Úttekt á tollafgreiðslu plöntuverndarvara 2018

Tilgangur og markmið:

  • Að leggja mat á það hve mikið af plöntuverndarvörum berast til landsins á hverju ári með hliðsjón af upplýsingum um tollafgreiðslur frá Tollstjóra og frá þeim fyrirtækjum sem markaðssetja þessar vörur.
  • Að athuga hvort tollflokkun sé hugsanlega ábótavant, leiðrétta og leiðbeina hlutaðeigandi fyrirtækjum um tollflokkun þannig að upplýsingar um tollafgreiðslu plöntuverndarvara gefi raunsanna mynd af því hve mikið er sett af þessum vörum á markað hér á la

Framkvæmd og helstu niðurstöður:

Í úttektinni var athyglinni beint að plöntuverndarvörum í eftirfarandi tollflokkunum:

  • 3808.9100: Skordýraeyðir; Sveppaeyðir
  • 3808.9300: Illgresiseyðir, spírunareyðir og efni til að stjórna plöntuvexti

Gögn frá Tollstjóra um tollafgreiðslu ásamt gögnum frá fyrirtækjum sem markaðssetja plöntuverndarvörur voru nýtt til að taka saman upplýsingar um það hve mikið af vörunum voru settar á markað á árinu 2018. Samkvæmt úttektinni fengu þrjú fyrirtæki tollafgreiddar plöntuverndarvörur á árinu sem skiptust niður á 33 sendingar.
Alls voru tollafgreidd 18,1 tonn af plöntuverndarvörum á árinu 2018 og hefur magnið því aukist umtalsvert á milli áranna 2017 og 2018, eða um 56% (1. mynd). Gögn sem Umhverfisstofnun hefur tekið saman um tollafgreiðslu á plöntuverndarvörum fyrir árin 2009-2017 sýna reyndar þá þróun að innflutningur þessara vara hefur dregist saman á tímabilinu og er nú aðeins um fjórðungur af því sem var 2009. Talsverðar sveiflur eru þó milli ára, en megin ástæðan fyrir þeim er sú, að teknar eru inn stórar sendingar af vörum sem nokkur ár tekur að selja og gæti það hafa átt við á árinu 2018. Af plöntuverndarvörum sem fluttar voru inn árið 2018 reyndust 80% af þeim vera illgresiseyðar en 20% skordýra- og sveppaeyðar, þannig að illgresiseyðar eru því enn stærsti hluti plöntuverndarvara á markaði líkt og á fyrri árum.

Þegar meta á áhrif plöntuverndarvara á heilsu og umhverfi gefur magn virkra efna mun betri vísbendingar um raunverulegt álag heldur en heildarmagnið og þar sem styrkur virku efnanna í plöntuverndarvörum liggur alltaf fyrir er hægt að reikna út hve ákveðið heildarmagn af vöru samsvarar miklu magni af virkum efnum. Sé það reiknað út fyrir innflutning ársins 2018 kemur í ljós að innflutningur á virkum efnum í plöntuverndarvörum dróst örlítið saman frá fyrra ári sem skýrist af því að meira var flutt inn af vörum sem innihéldu lágan styrk af virkum efnum (2. mynd). 



Upplýsingar sem aflað er á þennan hátt nýtast til þess að reikna út áhættuvísa sem settir eru fram í Aðgerðaráætlun um notkun varnarefna 2016-2031. Samkvæmt aðgerðaráætluninni skal innflutningur á plöntuverndarvörum ekki nema meiru en 12 tonnum alls á ári og sýna niðurstöður verkefnisins að því markmiði var ekki náð á árinu 2018 fyrir heildarmagn varanna. Aftur á móti náðist það markmið að innflutningur sé ekki meiri en sem nemur 3 tonnum af virku efni á ári.