Guðlaugstungur, ásamt Svörtutungum og Álfgeirstungum (Ásgeirstungur) voru friðlýstar sem friðland árið 2005. Friðlandið nær frá Hofsjökli niður að ármótum Blöndu og Haugakvíslar í suðausturhorni Blöndulóns. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda víðfemt og gróskumikið votlendi, sem jafnframt er eitt stærsta og fjölbreyttasta rústasvæði landsins. Yfir 23.000 pör heiðagæsa verpa á svæðinu og er það stærsta heiðagæsavarp í heiminum.
Svæðið hefur mjög hátt alþjóðlegt verndargildi og hefur verið Ramsarsvæði frá 2013 ásamt því að vera á skrá yfir alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði (International Bird Area).
Innan friðlandsins er öll umferð um varplönd heiðagæsar bönnuð frá 1. maí til 20. júní. Stærð friðlandsins er 398,2 ferkílómetrar.
Guðlaugstungur eru á norðanverðum Kili. Friðlandið liggur norðvestur af Hofsjökli og teygist til norðurs að bökkum Blöndulóns. Landslagið á svæðinu einkennist af miklum heiðalöndum, votlendi, rústum, mólendi og bersvæði sem ár og lækir skera sig í gegnum. Svæðið er hálent og liggur á milli 550-700 metra hæð yfir sjó. Í Guðlaugstungum finnast einar stærstu rústamýrar landsins og er í raun eitt af fáum svæðum þar sem slíkar minjar finnast. Rústirnar eru allt að tveggja metra háar bungur eða hæðir í freðmýralandslagi (sífrera) sem myndast við hækkun á yfirborði jarðvegs þegar jarðís myndast undir yfirborðinu í mýrarjarðveginum.
Í dag eru Guðlaugstungur stærsta heiðagæsavarp í heiminum. Litlar eða engar heimildir eru þó um varp heiðagæsa í Guðlaugstungum fyrr en á síðari hluta síðustu aldar. Árið 1970 fundust, sem dæmi, einungis um 100 heiðagæsapör, en á þeim tíma voru Þjórsárver stærsta heiðagæsavarp í heimi með áætluð um 12.000 pör. Vart varð við fjölgun heiðagæsa í Guðlaugstungum um og eftir 1980, en á sama tíma fækkaði þeim í Þjórsárverum. Um aldamótin var áætlað að um 13.600 pör væru á svæðinu og 2010 var stofninn metinn um 23.600 pör. Ísland er mikilvægasta varpsvæði heiðagæsarinnar og er varpstofninn í Guðlaugstungum áætlaður um fimmtungur af heimsstofni tegundarinnar.
Af öðrum fuglum á norðanverðum Kili eru heiðlóur, lóuþrælar, þúfutittlingar og snjóttitlingar algengastir.
Guðlaugstungur eru eitt af sex Ramsarsvæðum Íslands. Meginmarkmið Ramsarsamkomulagsins frá 1971 er að vernda votlendi, með sérstaka áherslu á mikilvæg svæði fyrir fugla. Í dag eru 90 þjóðir sem hafa skuldbundið sig að Ramsar samningnum og eru um 2300 Ramsarsvæði í heiminum (skrifað 2020). Árið 2010 var áætlað að um 23.600 pör af heiðagæsum, sem gera um fjórðung af íslenska stofninum. Jafnframt er það langstærsta varp heiðagæsa í heiminum öllum, sem færir Guðlaugstungur á skrá yfir alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði (Important Bird and Biodiversity Area).