Stök frétt

Höfundur myndar: Kristinn Már Ársælsson

Umhverfisstofnun boðar til opins kynningafundar um niðurstöður mengunarvarnaeftirlits og umhverfisvöktunar ársins 2023 vegna starfsleyfa Als álvinnslu, Elkem Ísland og Norðuráls á Grundartanga. Skýrslu umhverfisvöktunar má nálgast hér. Fundurinn er árlegur og í samræmi við starfsleyfi iðjuveranna. 

Fundurinn fer fram þriðjudaginn 4. júní nk. kl. 16:00 að Miðgarði í Hvalfjarðarsveit. Fundinum verður einnig streymt. 

Dagskrá fundarins:

  • Mengunarvarnaeftirlit Umhverfisstofnunar og niðurstöður eftirlits 2023 – Sigríður Magnúsdóttir
  • Niðurstöður umhverfisvöktunar á Grundartanga – Eva Yngvadóttir 
  • Erindi frá Norðurál – Guðlaugur Bjarki Lúðvíksson
  • Erindi frá Elkem – Sigurjón Svavarsson 
  • Umræður


Fundarstjóri: Aðalbjörg Birna Guttormsdóttir, sviðstjóri á sviði umhverfisgæða, Umhverfisstofnun 

Viðburðurinn á Facebook