Stök frétt

Í tengslum við framkvæmdir við uppsetningu útsýnispalla og lagfæringar á hluta göngustígs við náttúruvættið Dynjanda er ráðgert að þyrluflutningar fari fram í næstu viku. Samkvæmt veðurspám mun þá opnast samfelldur veðurgluggi í 3-4 daga en undanfarið hefur reynst örðugt að stilla saman slíkum gluggum við önnur verkefni flugmanna. Ef spár ganga eftir mun flugið hefjast á mánudagsmorgunn 29. júlí nk. og gert er ráð fyrir að það taki 3-4 daga eftir aðstæðum. Flogið verður með efni í um 240 ferðum frá Dynjandisheiði að fossaröðinni í Dynjandisá. Dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar vegna veðurs.

Til að tryggja öryggi gesta hins friðlýsta svæðis verður gönguleið meðfram Dynjandisá lokuð ofan Göngumannafoss (við útsýnispall 2) á meðan á fluginu stendur. Annað aðgengi að svæðinu verður að mestu óbreytt, þ.m.t. aðgengi að bílastæðum, salernum og áningarsvæði á flötinni neðan fossanna.“

Loftmyndin sýnir takmörkun á gönguleið neðan rauða striksins.