Stök frétt

Umhverfisstofnun vekur athygli neytenda á því að Kemi ehf. hefur innkallað EZ Chill Auto A/C Recharge R-134a í einnota málmhylkjum með þrýstingsmæli og slöngu. Vörunúmerið er: 102 MAC134. 
 
Ástæða innköllunarinnar er sú að varan inniheldur efnið 1,1,1,2-tetraflúoróetan (HFC-134a, R-134a) sem er kröftug gróðurhúsalofttegund en samkvæmt reglugerð nr. 1066/2019 um flúoraðar gróðurhúsalofttegundir er ólöglegt að selja flúoraðar gróðurhúsalofttegundir (HFC-efni) í einnota ílátum. 
 
Kemi ehf. beinir því til neytenda sem keypt hafa vöruna að skila henni til Kemi, Tunguhálsi 10 eða til Poulsen, Skeifunni 2. 
 
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðunum kemi.is og poulsen.is.