Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um breytingu á starfsleyfi urðunarstaðar Langanesbyggðar, kt. 420369-1749, við Bakkafjörð.

Urðunarstaðurinn við Bakkafjörð er með gilt starfsleyfi frá 21. mars 2018 til að taka á móti og urða allt að 200 tonn af úrgangi á ári sem gildir til 21. mars 2034.

Ákvörðunin felur það í sér að felld eru á brott ákvæði í  7. - 11. tl. í 1. mgr. gr. 4.1 í starfsleyfinu þar sem gerður er áskilnaður um skráningu á daglegum veðurathugunum.

Umhverfisstofnun auglýsti breytingartillögu á tímabilinu 23. desember 2024 til 21. janúar 2025 á vef Umhverfisstofnunar og einnig frá 8. janúar á nýjum vef Umhverfis- og orkustofnunar þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna tilögunnar. Engar athugasemdir bárust vegna tillögunnar á auglýsingatíma.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustu hætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála.

Meðfylgjandi skjöl:

Ákvörðun um breytingu á starfsleyfi urðunarstaðar við Bakkafjörð
Starfsleyfi Langanesbyggðar Bakkafirði