Baðstaðir í náttúrunni

Í samræmi við 4. grein reglugerðar um baðstaði í náttúrunni ber Umhverfisstofnun að birta lista fyrir, 1. mars ár hvert, yfir baðstaði í 1. og 2. flokki.

4. gr. Flokkun baðstaða í náttúrunni. Baðstaðir í náttúrunni flokkast í þrjá meginflokka: 

1. flokkur: Baðstaðir þar sem reglubundinn rekstur fer fram. Aðsókn baðgesta reglubundin yfir allt árið. Baðstaðir í 1. flokki eru starfsleyfisskyldir.

2. flokkur: Baðstaðir þar sem er tilfallandi rekstur fer fram. Aðsókn baðgesta getur verið reglubundin eða mismunandi eftir árstíðum. Baðstaðir í 2. flokki eru starfsleyfisskyldir.

3. flokkur: Baðstaðir þar sem ekki er um rekstur að ræða. Aðsókn baðgesta getur verið reglubundin eða mismunandi eftir árstíðum.

Heilbrigðisnefnd flokkar baðstaði á sínu starfssvæði og sendir Umhverfisstofnun fyrir 1. mars ár hvert lista yfir baðstaði í 1. og 2. flokki sem hafa starfsleyfi. Umhverfisstofnun birtir listann á vef stofnunarinnar þar sem heilbrigðisnefndir og rekstraraðilar geta komið á framfæri upplýsingum um lokanir og hættur í umhverfi baðstaðanna.

  Flokkur 1 Flokkur 2
Heilbrigðiseftirlitssvæði Náttúrulaug Náttúrulaug
HE - Austurland (HAUST)
Vök Baths, Vök við Urriðavatn, 701 Egilsstaðir Laugarfell, Fljótsdalshrepp, 701 Egilsstaðir 2. setlaugar
HE -Norðurland Vestra (HNV)
Engin Reykir á Reykjaströnd
HE -Norðurland Vestra (HNV)
Engin Hveravellir
HE -Suðurnesja (HES)
Bláa Lónið - Heilsulind Engin
HE -Suðurnesja (HES)
Bláa Lónið - Lækningalind Engin
HE -Suðurnesja (HES)  Bláa Lónið - Retreat Engin 
HE -Norðurland Eystra (HNE)
Engin Hjalteyri ehf. Hörgársveit
HE -Norðurland Eystra (HNE)
Baðlónið - Mývatnssveit Engin
HE- Reykjavík (HER)
Ylströndin í Nauthólsvík Engin
HE- Vesturland (HVL)
Krauma ehf, Hótel Húsafell efh. rekstur Giljabaða, Lýsuhólslaug og Hreppslaug Ströndin, Langasandi - Akranes
HE-Suðurland (HSL)
Gamla Laugin, Hvammur, 854 Flúðir Engin
HE-Hafnarfjarðar og Kópavogs (HHK)
Engin Engin
HE-Vestfirðir (HVF)
Engin Engin
HE-Kjósasvæðis (HKJ)
Engin Engin

 

Heilnæmi og gæði baðvatns

Samkvæmt 2. mgr. 11. gr. reglugerðar nr. 460/2015 um baðstaði í náttúrunni skal Heilbrigðisnefnd skal senda Umhverfisstofnun niðurstöður mælinga og mat á heilnæmi og gæði baðvatns á baðstöðum í 1. og 2. flokki. Umhverfisstofnun birtir upplýsingarnar á heimasíðu sinni:

Rannsóknaniðurstöður:

11. nóvember 2024