Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Náttúruminjaskrá

Náttúruminjaskrá er skrá yfir friðlýst svæði á Íslandi og aðrar mikilvægar náttúruminjar sem ástæða þykir til að friðlýsa eða friða.

Núgildandi náttúruminjaskrá er frá árinu 1996 og unnin á grundvelli þágildandi náttúruverndarlaga nr. 47/1971 en fjöldi svæða á skránni hefur verið friðlýstur. Náttúrufræðistofnun Íslands vinnur að endurskoðun á verndargildi svæða á náttúruminjaskrá.