Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur í samráði við Náttúruverndarnefnd Seltjarnarnesbæjar og að fenginni umsögn fuglafræðings ákveðið að framlengja lokun Gróttu í Seltjarnarnesbæ fyrir umferð gesta.

Lokunin gildir frá 16. júlí til og með 31. júlí 2024 - Virðum fuglavarp á svæðinu!

Grótta er skilgreint sem friðland skv. auglýsingu nr. 13/1984. Samkvæmt auglýsingunni er umferð óviðkomandi fólks bönnuð á tímabilinu 1. maí til 15. júlí. Umhverfisstofnun telur mikilvægt að framlengja lokunina þar sem hætta er á verulegri röskun á fuglalífi ef svæðið verður opnað á þeim tíma sem tilgreindur er í auglýsingunni, enda um viðkvæmt tímabil fuglalífs að ræða.

Svæðið nálægt Gróttu, sem og Grótta er vinsælt útivistarsvæði og því mikilvægt að bregðast við sem fyrst.

Um skyndilokun er að ræða og sem fyrr segir mun hún standa yfir til 31. júlí 2024.

Grótta closed - information in English