Fjölskyldustefna

Fjölskyldustefna Umhverfisstofnunar

Umhverfisstofnun vill stuðla að því að starfsfólk hafi sem best tækifæri til starfsþróunar, sé kleift að skilja á milli vinnu og fjölskyldulífs, samhliða því að sinna fjölskyldu  og að geta notið einkalífs síns sem best í frítíma sínum. Til viðbótar lögbundnum réttindum vill stofnunin leggja sitt af mörkum til að ná fram framangreindum markmiðum.

Umhverfisstofnun hefur sett sér almenn viðmið um sveigjanlegan vinnutíma, sem eiga við um allt starfsfólk og þarf ekki að sækja sérstaklega um 

  • Foreldrar geta óskað eftir lengingu á barnseignarleyfum þannig að leyfi spanni allt að eitt ár skv. samkomulagi við yfirmann og reglur Fæðingarorlofssjóðs. 
  • Starfsfólk getur óskað eftir tímabundið minnkuðu starfshlutfalli eða auknum sveigjanleika til að geta sinnt börnum sínum eða vegna annarra fjölskylduaðstæðna. Slík leyfi eru veitt til árs í senn. 
  • Yfirmenn taka tillit til einstæðra foreldra / helgarforeldra þegar vaktatöflur eru gerðar (starfsfólk í þjóðgarði og á friðlýstum svæðum). 
  • Almennt er starfsfólk ekki boðað á fundi fyrir kl. 9:00 að morgni eða að þeir standi ekki lengur en til kl. 16:00 síðdegis. 
  • Börn starfsmanna eru velkomin á vinnustaðinn.  
  • Umhverfisstofnun býður starfsfólki sínu launað leyfi f.h. á aðfangadag og gamlársdag til að njóta sem best samvista við fjölskyldu þessa daga. 

 

Stefnan staðfest af yfirstjórn 4. september 2023.