Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Viðmiðunartaxtar

Auglýsing um viðmiðunartaxta launa, aksturs og verðlaun fyrir unna refi og minka

Viðmiðunartaxti og verðlaun fyrir refi og minka.

Við endurgreiðslu ríkisins til sveitarfélaga á hlutdeild ríkisins í viðmiðunartaxta launa, aksturs og verðlaunum fyrir unna refi, skv. 4. mgr. 12. gr. laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum og fyrir unna minka skv. 3. mgr. 13. gr. sömu laga, sbr. 10. gr. reglugerðar nr. 437/1995 um refa- og minkaveiðar með áorðnum breytingum, skal miða við:

Fyrir refi - hámarksviðmið og hámarksverðlaun:

  • Refir kr. 7.000 á dýr.
  • Yrðlingar kr. 1.600 á dýr.
  • Tímakaup ráðinna veiðimanna kr. 1.615 kr/klst.
  • Akstur 110 kr/km.

Fyrir minka - hámarksviðmið og hámarksverðlaun:

  • Verðlaun fyrir unninn mink kr. 3.000 á dýr.
  • Verðlaun fyrir hvolpafulla læðu kr. 15.000 á dýr.
  • Tímakaup ráðinna veiðimanna kr. 1.615 kr./klst.
  • Akstur 110 kr/km.

Endurgreiðsla ríkisins til sveitarfélaga vegna:

Refaveiða miðast við hlutdeild af ofangreindum viðmiðunartöxtum og verðlaunum eftir því sem samningar ríkisins við viðkomandi sveitarfélög leyfa á grundvelli fjárveitinga á fjárlögum.
Endurgreiðsla ríkisins til sveitarfélaga vegna minkaveiða miðast að hámarki við helming kostnaðar við veiðarnar eftir því sem nánar er ákveðið í fjárlögum.

Sveitarfélög skulu fyrir 15. október ár hvert senda Umhverfisstofnun umsókn um endurgreiðslur.