Stök frétt

Mynd: Daniel F. Jonsson
Drög að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir náttúruvættið Fjaðrárgljúfur hefur nú verið lögð fram til kynningar næstu 6 vikurnar. 
 
Fjaðrárgljúfur var friðlýst sem náttúruvætti í maí árið 2024. 
 
Áætlunin er unnin af fulltrúum Umhverfisstofnunar, fulltrúa landeigenda og fulltrúa Skaftárhrepps. 
Eins er áætlunin unnin í góðu samstarfi við aðrar stofnanir s.s. Minjastofnun. 
 
Meginmarkmið með gerð stjórnunar- og verndaráætlunar er að leggja fram stefnu um verndun svæðisins og hvernig viðhalda skuli verndargildi þess þannig að sem mest sátt ríki um. Í áætluninni er lögð fram stefnumótum til framtíðar, ásamt aðgerðaáætlun til þriggja ára. 
 
Áætlunin er sett fram í samræmi við 81. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. 
 
Óskað er eftir athugasemdum frá almenningi við drög að áætluninni en aðkoma hagsmunaaðila er mikilvægur þáttur til að skapa sátt um daglegan rekstur og framtíð friðlýstra svæða. 

Skilafrestur athugasemda er til og með 27. júní 2024.