Í dag, þann 31. mars 2014, er síðasti mögulegi greiðsludagur staðfestingargjalds vegna úthlutaðs hreindýraveiðileyfis. Hafi greiðsla ekki borist fyrir 1. apríl þá hefur leyfishafi afsalað sér leyfinu og því verður úthlutað að nýju. ...
Frestur til að sækja um hreindýraveiðileyfi rann út á miðnætti 15. febrúar og er verið að fara yfir umóknir. Þegar fjöldi umsókna og fjöldi þeirra sem eru á fimm skipta reglunni liggur fyrir verður það birt hér á síðunni. ...
Opnað hefur verið fyrir skilavef til að skila inn veiðiskýrslu og sækja um nýtt veiðikort. Umhverfisstofnun hefur sent út tölvupóst til allra veiðikorthafa vegna skila á veiðiskýrslu og umsóknar um nýtt veiðikort. ...
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta þessa árs að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1277 dýr á árinu sem er fjölgun um 48 dýr frá fyrra ári. ...
Drög að hreindýraarði fyrir ágangsvæði og jarðir hafa verið send viðeigandi sveitarfélögum. Drögin liggja frammi til skoðunar á skrifstofu sveitarfélagsins í tvær vikur frá 5. desember til 18. desember 2013. ...
Umhverfis- og auðlindaráðherra úthlutar fé til rannsókna af tekjum vegna sölu veiðikorta í samræmi við lög nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. ...
Þeir leyfishafar sem ætla sér að selja hreindýrakjöt, heilan skrokk eða að hluta, til veitingastaða eða smásöluaðila verða að fá kjötið heilbrigðisstimplað. Sláturhús Norðlenska á Höfn í Hornafirði tekur að sér að flá hreindýr og heilbrigðisstimpla hreindýrakjöt. Koma skal með dýrið óflegið á staðinn til að það fáist stimplað. ...
Dúfnaveislan hófst á 15 skotvöllum víða um land mánudaginn 1. júlí og stendur til 31. ágúst. ...
Hreindýraveiðimenn þurfa að standast verklegt skotpróf í síðasta lagi sunnudaginn 30. júní og hætt við að mikið álag verði næstu daga á skotvöllum landsins. Alls hafa um 700 próf þegar verið tekin en áætlað er að taka þurfi um 700 próf í viðbót. Veiðimenn eru hvattir til þess að fara sem fyrst í skotprófið. ...
Umhverfisstofnun hefur opnað fyrir að leiðsögumenn geti bætt við sig svæðum til leiðsagnar. ...