Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur borist umsókn rekstraraðilans Höndlun ehf., kt. 681174-0289 og fyrirtækisins Stjörnugrís hf., kt. 600667-0179, þar sem óskað er eftir því að færa starfsleyfi fyrir rekstri þauleldis svína á lóðinni að Brautarholti, 162 Kjalarnesi í Reykjavík, útgefið 8. október 2013 af Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur frá Höndlun ehf. yfir á nýjan rekstraraðila Stjörnugrís hf.

Ekki er um að ræða breytingu á starfsleyfisskilyrðum. Starfsleyfið gildir til 8. október 2025. Unnið er að ákvörðun í málinu.