Stök frétt

Umhverfisstofnun auglýsir námskeið í landvörslu. Þátttaka í námskeiðinu veitir landvarðaréttindi. Námskeiðið er 110 tímar og gjald kr. 120.000. Námskeiðið hefst 18. febrúar og lýkur 21. mars n.k. Kennt er um helgar, milli 10 og 18, og á kvöldin á virkum dögum, milli 17 og 22. Einnig er fimm daga vettvangs- og verkefnaferð.

Námskeiðið er kennt bæði í fjar- og staðnámi sem gerir fóllki hvar sem er af landinu kleift að taka þátt. Fjarnemar eru skyldugir til að taka hluta námskeiðsins í staðnámi. Staðnámið fer fram húsnæði Umhverfisstofnunar að Suðurlandsbraut 24 í Reykjavík.

Umsóknum skal skilað til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24 eða í tölvupósti á netfangið ust@ust.is fyrir 5. febrúar 2010. Í umsókn þarf að koma fram nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang. Skilyrði er að umsækjendur séu fæddir árið 1990 eða fyrr. Lágmarksfjöldi er skilyrði þess að námskeiðið verði haldið.

Nánari upplýsingar veitir Jón Björnsson hjá Umhverfisstofnun, jonb@ust.is.

Dagskrá er birt með fyrirvara um að á henni kunni að verða smávægilegar breytingar.

Dagskrá landvarðanámskeiðs 2010

 

18. feb

Kynning á námskeiði

1 klst.

17-18

18. feb

Helstu störf landvarða. Fyrirlestrar, umræður og verkefni

4 klst.

18-22

19. feb

Náttúruvernd, saga, hugmyndafræði. Friðlýsingar, flokkar, einstök svæði m. sérstakt gildi . Fyrirlestrar, umræður og verkefni.

5 klst.

17-22

20. feb

Umhverfistúlkun, hugmyndafræði og grundvallaratriði. Fyrirlestrar og verkefni.

3 klst.

9-12

20. feb

Menningarminjar. Gildi, verndun. Áhrifavaldar. einstakir þættir – greining sérstöðu og nýting við fræðslu.

6 klst.

13-19

21. feb

Náttúrufræði. Grunnþættir, hugtök, gildi, verndun. Áhrifavaldar, þolmörk, aðferðir. Einstakir þættir – greining sérstöður og nýting við fræðslu. Fyrirlestur

3 klst.

9-12

21. feb

Vettvangsferð í nágrenni Reykjavíkur. Kynning á aðstæðum, útivinna og verkefni. Frekari upplýsingar koma síðar.

6 klst.

12:30-18:30

25. feb

Mannleg samskipti, almennt um samskipti, sjálfsmynd, hindranir, framkoma, ímynd og fleira. Að taka á erfiðum málum. Fyrirlestrar, umræður og verkefni.

5 klst.

17-22

26. feb

Gestir friðlýstra svæða. Ferðamennska, áhrifaþættir framtíðar, ástæða heimsókna á svæði, sýn gesta, þolmörk og viðhorf. Mismunandi hópar og þarfir gesta.

5 klst.

17-22

4. mars

Farið í Skaftafell

4 klst.

17-21

5. mars

Umhverfistúlkun æfingar. Persónuleg í gönguferðum og gestastofu

10 klst.

6. mars

Umhverfistúlkun æfingar. Persónuleg í gönguferðum og gestastofu

10 klst.

7. mars

Lok umhverfistúlkunar í Skaftafelli og farið heim

6 klst.

-17.30

11. mars

Stjórnsýsla umhverfismála. UST, hlutverk og staða, verkefni og fleira. Vatnajökulsþjóðgarður, hlutverk, staða og verkefni. Þingvallanefnd, hlutverk, staða og verkefni. Sveitarfélög og aðrir sem koma að rekstri og umsjón. Lög og reglugerðir. Samstarfsaðilar erlendis. Alþjóðasamningar. Náttúruverndaráætlun og verndaráætlanir. Fyrirlestrar og umræður.

5 klst.

17-22

12. mars

Öryggismál. Hlutverk landvarða, boðleiðir, eigið öryggi, öryggi gesta, að þekkja svæðið sitt. Öryggisgreining og öryggisáætlun. Gerð öryggisáætlunar. Hálendisgæslan. Fyrirlestrar, umræður og hópverkefni.

5 klst.

17-22

18. mars

Fræðsla. Gerð náttúru- og sögustíga.

5 klst.

17-22

19. mars

Umhverfis- og hreinlætismál. Umhverfisstefna, umhverfisvottun, heilbrigðismál, lög og reglugerðir er lúta að heilbrigðismálum. Flokkun og meðhöndlun sorps, meðferð matvæla, umgengni við hættuleg efni ofl.

5 klst.

17-22

20. mars

Göngustígagerð. Vettvangsferð

10 klst.

9-19

21. mars

Verndaráætlun, stefnumörkun. Hvað er og fyrir hverja? Hagsmunaaðilar. Samráð. Stjórntæki. Fyrirlestrar og vettvangsferð

10 klst.

9-17

21.mars

Lok námskeiðs

2 klst.

18-20