Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir móttökustöð Hringrásar hf. að Ægisnesi 1, Akureyri. Samkvæmt tillögunni verður Hringrás heimilt að taka á móti allt að 3900 tonnum af málmum, hjólbörðum og spilliefnum á ári til meðhöndlunar, þ.e. flokkunar, forvinnslu, pökkunar og geymslu. Starfsleyfi verður gefið út til sextán ára. Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn, mun liggja frammi til kynningar í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9, til 18. ágúst 2010. Starfsleyfistillögu og önnur gögn má einnig nálgast á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Athugasemdir við umsókn eða tillögu skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 18. ágúst 2010. Kynningarfundur verður haldinn þann 21. júlí, kl. 17, í anddyri Borga við Norðurslóð á Akureyri (Háskólasvæðinu).