Umhverfisstofnun hefur umsjón með Dyrhólaey. Á friðlýstum svæðum þarf að gæta að verndun samhliða því að tryggja almannarétt. Mörg svæði eru lokuð hluta úr ári til verndunar dýralífi, önnur eru lokuð allt árið vegna viðkvæmra náttúruminja, umferð um sum svæði er takmörkuð þannig að fólk þarf að tilkynna sig inn á svæði og enn önnur opin allt árið um kring. Umhverfisstofnun hefur heimild til að takmarka umferð í Dyrhólaey og hefur stofnunin ákveðið síðustu ár hvort og hversu lengi svæðið skuli lokað fyrir umferð almennings til verndunar fuglalífi.
Undanfarin ár hafa verið miklar deilur vegna Dyrhólaeyjar þar sem ólík sjónarmið eru uppi á svæðinu um hvort og hversu lengi loka eigi svæðinu. Þar takast á ýmsir hagsmunir.
Umhverfisstofnun tekur ákvarðanir með hagsmuni umhverfis og almannarétt að leiðarljósi. Það er mikilvægt að fólk virði þær ákvarðanir sem teknar eru til verndar náttúru og dýralífi jafnt sem þeim sem tryggja almannarétt og umgengni um svæði.
Dyrhólaey er opin almenningi nær allt árið en umferð verður stýrt um friðlandið með eftirfarandi hætti á árinu 2013 til verndar fuglalífi: