Stök frétt

Sumarið er komið með öllum sínum fargestum og þar á meðal landverðir Umhverfisstofnunar sem verða tveir þetta árið eins og síðastliðið sumar. 

Landvarsla í friðlandinu Vatnsfirði og náttúruvættunum Surtabrandsgili og Dynjanda verður í höndum Yvonne Zerah Smith sem mun starfa frá 7. júní til 16. ágúst. Helstu verkefni landvarðar eru eftirlit með verndarsvæðunum þremur, fræðsla og upplýsingagjöf til ferðamanna ásamt ýmsum viðhaldsverkefnum. Landvörður mun einnig sjá um skipulagðar gönguferðir fimm sinnum í viku í Surtabrandsgil, en almenningi er einungis heimil för í gilið í fylgd með landverði eða að fengnu leyfi ábúenda á Brjánslæk eða Umhverfisstofnunar.

Landvarsla á Látrabjargssvæðinu verður að þessu sinni í höndum Dagnýjar Bryndísar Sigurjónsdóttur og mun hún starfa á tímabilinu 14. júní til 23. ágúst. Helstu verkefni landvarðar eru fræðsla og upplýsingagjöf til ferðamanna, eftirlit á Látrabjargi og nágrenni, umsjón með salernisaðstöðu á Brunnum ásamt ýmsum viðhaldsverkefnum.

Sjálfboðaliðar Umhverfisstofnunar munu starfa á öllum verndarsvæðum í byrjun sumars. Verkefni sem liggja fyrir eru fyrst og fremst viðhald á göngustígum á Bjargtöngum í Vatnsfirði og á Dynjanda.

Landvarsla snýst að miklu leiti um náttúrutúlkun, þ.e. að fræða almenning um náttúruna, hvetja fólk til útivistar og njóta, vernda og virða náttúru Íslands. Landverðir verða með skipulagða dagskrá í sumar þar sem almenningi stendur til boða gönguferðir um verndarsvæðin, að upplifa þessar stórkostlegu náttúruperlur sem Sunnanverðir Vestfirðir hafa að geyma.

Dagskrá landvarða á Sunnanverðum Vestfjörðum sumarið 2013

  • 12. júní – 14 ágúst: Surtabrandsgil.
    Tveggja tíma gönguferðir í Surtabrandsgil á miðvikudögum kl. 15:00 og á laugardögum og sunnudögum kl. 11:00 og 15:00. 
  • 16. júní: Dagur hinna villtu blóma.
    Tveggja tíma ganga um brúnir Látrabjargs þar sem gestum gefst tækifæri til að fræðast um flóru svæðisins.
  • 5. - 7. júlí: Barnahelgi í Vatnsfirði.
    Fjölskyldudagskrá þar sem sérstaklega er höfðað til barna.
  • 20. júlí: Friðlýstar náttúruperlur í Vesturbyggð.
    Fyrirlestur á Minjasafni Egils Ólafssonar um kl. 15:00. 
  • 28. júlí: Barnastund með landverði.
    Kl. 15:00 við Minjasafn Egils Ólafssonar á Hnjóti. 
  • 31. júlí: Alþjóðadagur landvarða.
    Landverðir bjóða almenningi að gerast landverðir í einn dag með því að taka þátt í daglegum störfum landvarða í Vatnsfirði frá kl. 13:00 - 17:00.
  • 17. ágúst: Náttúra Látrabjargs, verndargildi og landvarsla.
    Fyrirlestur á Minjasafni Egils Ólafssonar.
  • 16. september: Dagur Íslenskra náttúru .

Dagskrá verður auglýst nánar þegar nær dregur hverjum viðburði.