Stök frétt

33% færri frávík í eftirliti Meðaltal frávika á eftirlit hefur lækkað úr hlutfallinu 1,2 frávik á hvert fyrirtæki niður í 0,8 frávik á hvert fyrirtæki milli áranna 2012 og 2013 eða um 33% milli ára. Frávikum hefur fækkað um helming miðað við árið 2011 en þá voru skráð að meðaltali 1,6 frávik á hvert fyrirtæki. Mest munar þar um mikla fækkun frávika hjá úrgangs- og efnamóttökum en frávikum hefur einnig fækkað hjá fiskimjölsverksmiðjum, í fiskeldi og hjá olíubirgðastöðvum. Umhverfisstofnun væntir þess að fjöldi frávika muni áfram fækka á komandi árum. Stofnunin hefur eftirlit með rúmlega 130 fyrirtækjum sem fá eftirlit í samræmi við ákvæði starfsleyfis.

Búið er að bæta úr eða samþykkja úrbótaáætlanir fyrir um 86% þeirra frávika sem skráð voru á árinu 2013. Fyrirtæki eru nú fljótari en áður að bregðast við frávikum og gera úrbótaáætlanir en í júní á síðasta ári var búið að bæta úr eða samþykkja úrbótaáætlanir fyrir um 60% þeirra frávika sem skráð voru á árinu 2012.

 

2013 Fjöldi
frávika
Fjöldi starfsleyfa
sem fengu eftirlit
Fjöldi
eftirfylgnismála
Meðaltal frávika
á eftirlit
Úrbótum
lokið
Samþykkt
áætlun
Úrbótum
ólokið
Lokið eða
samþ. áætlun
Úrgangur og efnamóttaka 54 43 25 1,26 38 11 5 91%
Fiskimjölsverksmiðjur 12 12 8 1 4 8 0 100%
Fiskeldi og kræklingarækt 8 22  4 0,36 7 0 1 88%
Olíubirgðastöðvar 2 34 2 0,06 1 1 0 100%
Verksmiðjur 24 8 6 7 11 6 75%
Áver 3 3 0,75 3 0 0 100%
Efnaiðnaður 5 6 5 0,83 2 0 3 40%
Erfðabreyttar lífverur 2 5 1 0,11 2 0 0 100%
Alls 110 134 54 0,82 64 31 15 86%

Öllum frávikum er fylgt eftir þar til bætt hefur verið úr. Almennt dugar að óska eftir úrbótum en stundum þarf að beita áminningum. Sjaldan kemur til þess að beita dagsektum og voru engar slíkar lagðar á árið 2013 en einnig hefur stofnunin lokunarheimildir. 

Umhverfisstofnun hefur frá árinu 2008 hert eftirlit sitt og breytt verklagi hvað það varðar. Frávik eru betur skráð, þeim er öllum fylgt eftir og þvingunarúrræðum beitt. Meðfylgjandi mynd sýnir að fyrir þær breytingar var þvingunarúrræðum, s.s. áminningum, sjaldan beitt. Þá ákvað stofnunin að auka verulega gegnsæi í eftirlitinu með því að birta allar eftirlitsskýrslur og upplýsingar úr eftirliti á vefsvæði stofnunarinnar. Upplýsingamiðlun úr eftirliti þykir með því besta sem gerist í Evrópu að mati IMPEL. Fækkun frávika milli ára bendir til þess að þær breytingar sem ráðist var í séu að skila árangri.

Fylgstu með eftirlitinu

Á umhverfisstofnun.is er hægt að skoða allar eftirlitsskýrslur og ýmis gögn sem tengjast þeim fyrirtækjum sem eru undir eftirliti. Hvert fyrirtæki er með sérstaka síðu þar sem birtar eru eftirlitsskýrslur, bréf vegna beitingu þvingunarúrræða, mælingar og fleira tengt. Hægt er að skoða yfirlit yfir fyrirtækin á korti af Íslandi þannig að auðvelt sé að finna fyrirtæki hvar sem er á landinu.