Stök frétt
Umhverfisstofnun hefur rekið verkefni sjálfboðaliðastarfs í náttúruvernd frá upphafi stofnunarinnar. Sjálfboðaliðar Umhverfisstofnunar sinna fjölbreyttum verkefnum yfir löng tímabil. Vekefnið er að hluta í samstarfi við sjálfboðaliðasamtök og íslenska sem erlenda framhaldsskóla.
Árið 2013 unnu sjálfboðaliðar 2.466 vinnudaga hjá Umhverfisstofnun (493,2 vinnuvikur) á 35 friðlýstum svæðum um allt land, frá Hornströndum til Lónsöræfa, frá Reykjanesi til Ásbyrgis, frá Snæfellsnesi til Kverkfjalla. 173 manns komu sérstaklega til landsinsog unnu mikilvægt starf í þágu náttúrunnar. Fram til ársins 2012 hafa flestir sjálfboðaliða komið erlendis frá en árið 2013 voru mikil tímamót, þegar samstarf við íslenska framhaldsskóla hófst og hlutfall íslenskra sjálfboðaliða fór þar með upp í 21%, en það var 1% árið áður. Í mars sl. tóku kennarar frá sjö framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu þátt í samráðsfundi um að taka Reykjaveg (120 km gönguleið) að sér, með aðstoð Sjálfboðaliða Umhverfisstofnunar.
Sjálfboðaliðar Umverfisstofnunar vinna á náttúruverndarsvæðum. Þeir aðstoða landverði Umhverfisstofnunar og einnig landverði Vatnajökulsþjóðgarðs, skógarverði Skógræktar Ríkisins og landeigendur. Þeir búa yfir mikilli reynslu, bæði í þjálfun liðsstjóra og í gerð og lagfæringu göngustíga. Þeir eru sérhæfðir í ýmsum verkefnum sem snúa að endurheimt landslags, votlendi og líffræðilegri fjölbreytni.
Sjálfboðaliðastarfið gegnir einnig félagslegu hlutverki sem felst í því að gera íslenskum og erlendum ungmennum kleift að upplifa náttúruna og taka þátt í verndun hennar.
Árið 2013 unnu sjálfboðaliðar í fyrsta skipti í Þjórsárverum, Geitlandi og á Eldfelli. Á Hornströndum hafa þeir í fyrsta skipti tekið að sér það verkefni að endurhlaða gamlar vörður og 70 vörður hafa verið reistar í upprunalegri mynd undir umsjón sérfræðings. Svæði á rauðum lista hafa verið einnig fengið sérstaka athygli, t.d. Mývatn og Laugarás.
Að verkefninu koma nokkrir starfsmenn Umhverfisstofnunar: Umsjónarmaður sjálfboðaliða, sem skipuleggur sjálfboðaliðastarf (ráðningu sjálfboðaliða, gistingu, þjálfun, uppihald, verkfæri, samgöngur, öryggismál); landverðir í náttúrusvæðateymi sem skipuleggja verkefni á friðlýstum svæðum og fylgjast með sjálfboðaliðahópum þegar þeir koma á þeirra svæði; starfsmenn í rekstrateymi og upplýsingateymi. Á ári hverju koma einnig til Íslands 12-15 liðsstjórar sem eru sjálfir sjálfboðaliðar. Margir þeirra hafa unnið sem liðsstjórar á Íslandi í mörg sumur í röð og eru orðnir sérfróðir um alls kyns aðgerðir í náttúruvernd og búa yfir dýrmætri kunnáttu.
Sjálfboðaliðar Umhverfisstofnunnar taka þátt í að skipuleggja námskeið í göngustígagerð í Hólaskóla í byrjun maí ár hvert og þess vegna hefur tekið Umhverfisstofnun einnig þátt í alþjóðlegu verkefni sem ber heitið „Volunteer Management in European Parks“ ásamt systurstofnunum í Europarc Federation. Sjálfboðaliðar Umhverfisstonunar hafa lokið með prýði þriggja ára samstarfi við níu aðra evrópska aðila og hlutverk Umhverfisstonunar var að stjórna ferð umsjónarmanna sjálfboðaliða milli Evrópulanda til að læra af sjálfboðaliðastarfi annarra landa. Átján umsjónarmenn frá átta löndum heimsóttu þjóðgarða í Evrópu til að kynna sér sjálfboðaliðastarf erlendis. Samtals voru 180 dagsferðir nýttar.
Síðasta verkefni ársins var unnið í byrjun október þegar mjög fjölbreyttur hópur tók þátt í Stóru grænu helginni (e. Big Green Weekend) sem er alþjóðlegur viðburður. Þar komu saman sjálfboðaliðar frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla og Menntaskólanum við Hamrahlíð og létu gott af sér leiða ásamt nokkrum erlendum sjálfboðaliðum með mikla reynslu. Þetta var í þriðja skipti sem Umhverfisstofnun tók þátt. Helgina 5. – 6. október fór hópur sjálfboðaliða á Esju, í Reykjanesfólkvang og Laugarás og þar var unnið af krafti við að lagfæra og afmarka göngustíga. Þessi atburður er liður í því að auka sjálfboðaliðastarf í náttúruvernd meðal Íslendinga.
Fjöldi vinnudaga eftir samstarfsaðila
Samstarfsaðilar | Fjöldi vinnudaga | % |
ICV - Umhverfisstofnun | 1674 | 67,88 |
The Conservation Volunteers | 346 | 14,03 |
Working Abroad | 200 | 8,11 |
Seeds | 70 | 2,84 |
Fjölbrautarskólinn Ármúla | 53 | 2,15 |
Eckerd College, Florida | 41 | 1,66 |
Junior Rangers Fife | 30 | 1,22 |
Europarc - Grundtvig project | 25 | 1,01 |
Menntaskólinn við Hamrahlíð | 16 | 0,65 |
School for International Training | 11 | 0,45 |
2466 (493,2 vinnuvikur) |
Verkefni
Verkefni | Vinnuvikur | % |
Lagfæring göngustíga (bera möl, skipta út plötu á palla, laga tröppur og ræsi) | 147,8 | 29,97 |
Afmörkun göngustíga (stikun, girðing, kaðall, staurar) | 106,6 | 21,61 |
Nýir göngustígar | 62,8 | 12,73 |
Uppræting ágengra tegunda plantna | 57 | 11,56 |
Starfssemi þjóðgarðs | 25 | 5,07 |
Raka yfir hjólför vegna aksturs utan vega | 22 | 4,46 |
Endurreisn gamalla varða | 21 | 4,26 |
Skipulagning | 20 | 4,06 |
Mosauppgræðsla | 12 | 2,43 |
Kynning og þjálfun | 9 | 1,82 |
Skilti og táknmyndir | 5,6 | 1,14 |
Hreinsun svæða | 4,4 | 0,89 |
Samtals | 493,2 |
Vinnuvikur fyrir hvert svæði 2003 - 2013
Svæði | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | |
Skaftafell - Þjóðgarður | VJP | 82 | 135 | 139 | 165 | 188 | 220 | 283 | 161 | 223 | 84,3 | 119 |
Jökulsárgljúfur - Þjóðgarður | VJP | 52 | 69 | 38 | 70 | 82 | 92 | 48 | 64 | 72 | 37,9 | 47,4 |
Mývatn og Laxá svæði | UST | 18 | 22 | 22 | 65 | 56 | 9 | 26 | 48 | 30 | 18 | 18,2 |
Mývatn (Leirhnjúkar) | Landeig. | 20 | 5 | 10 | 2 | |||||||
Fjallabak - Friðland | UST | 18 | 22 | 22 | 14 | 35 | 49 | 30 | 53 | 35 | 9,2 | 10 |
Snæfellsjökull Þjóðgarður | UST | 5 | 18 | 12 | 8 | 8 | 9 | 9 | 23 | 12 | 28 | 23,4 |
Hólar - námskeið í göngustígagerð | Hólaskóli | 5 | 5 | 4 | 5 | 5 | 4 | 5 | 24 | 17 | 17,4 | |
Lakagígar - Þjóðgarður | VJP | 2 | 5 | 8 | 7 | 7 | 15 | 12 | 6 | 10 | ||
Askja / Herðubreiðalindir | VJP | 2 | 2 | 1 | 4 | 5 | 5 | |||||
Þórsmörk | Skógrækt | 5 | 13 | 22 | 48 | 45 | 46 | 6 | 40 | 57 | 38 | |
Gullfoss | UST | 1 | 2 | 3 | 4 | 3 | 2 | 5 | 2 | 4,6 | ||
Geysir | Landeig. | 8 | 32 | 2,4 | ||||||||
Lónsöræfi - Friðland | VJP | 3 | 7 | 6 | 4 | 4 | 7 | 5 | 4 | |||
Hornstrandir - Friðland | UST | 4 | 1 | 26 | 16 | 9 | 15 | 21 | ||||
Esja | Skógrækt | 25 | 51 | 50 | 15 | 52 | 10 | 18 | 29,6 | |||
Hveravellir | UST | 5 | 10 | 18 | 10 | |||||||
Eldgjá | VJP | 4 | 10 | 12 | 11 | 10 | 8 | |||||
Einkunnir - Borgarnes | UST | 1 | ||||||||||
Díma í Lóni | UST | 1 | ||||||||||
Eldborg í Hnappadal | UST | 10 | 11 | 6 | 5 | |||||||
Grábrók | UST | 6 | 6 | 6 | 8 | |||||||
Hraunfossar | UST | 5 | 7 | 1 | ||||||||
Vatnshornsskógur | UST | 7 | 12 | 1,8 | ||||||||
Þingvellir - Þjóðgarður | Þjóðgarður | 9 | ||||||||||
Steðja | UST | 1 | ||||||||||
Geitland | UST | 4 | ||||||||||
Laugarás | UST | 16,4 | 6,4 | |||||||||
Hraun í Öxnadal | UST | 2 | 4 | |||||||||
Snæfell - Þjóðgarður | VJP | 6 | 10 | |||||||||
Kverkafjöll - Þjóðgarður | VJP | 10 | 10 | |||||||||
Drekagil | VJP | 7 | 8 | |||||||||
Nýidalur/Kistufell - Þjóðgarður | VJP | 5 | 5 | |||||||||
Svarfaðardalur - Friðland | UST | 8 | 5 | |||||||||
Dverghamrar | UST | 3 | ||||||||||
Þjórsárver - Friðland | UST | 1,6 | ||||||||||
Vatnsfjörður - Friðland | UST | 9 | 12 | 7 | 3 | |||||||
Dynjandi | UST | 5 | 5 | |||||||||
Surtarbrandsgil | UST | 3 | 2 | |||||||||
Látrar | UST | 10 | 10 | |||||||||
Reykjanesfólkvangur | UST | 10 | 37,6 | 3,6 | ||||||||
Eldborg í Bláfjöllum | UST | 5,4 | 0,6 | |||||||||
Dyrhólaey - Friðland | UST | 2 | 1,6 | 6,4 | ||||||||
Eldfell (Vestmannaeyjar) | Sveitarf. | 8 | ||||||||||
Hellisheiði | Landeig. | 6 | 10 | |||||||||
Laugarvegurinn | UST | 3 | 16 | 5 | 5 | |||||||
Önnur verkefni (félagsleg) | Ýmisl. | 13 | 7 | 4 | 5 | 8 | 2,2 | 3 | ||||
Reykjavík (þjálfun) | UST | 8 | 1 | 7 | 6 | |||||||
Reykjavík (verkstæði/skipulagning) | UST | 2 | 12 | 11 | 20 | 13,2 | 20 | |||||
Samtals vinnuvikur | 180 | 280 | 265 | 405 | 510 | 569 | 569 | 566 | 596 | 456 | 493 |