Stök frétt

Síðustu daga hefur blá móða legið yfir Austurlandi vegna eldgossins í Holuhrauni og var hún óvenju mikil í gær laugardag. Há gildi mældust á vöktunarstöðvum í Reyðarfirði og loftmyndir bentu til að mengun væri jafnvel enn meiri á Jökuldal og Fljótsdal. Þau gildi sem mældust í fyrradag eru þau hæstu sem mælst hafa í byggð hér á landi síðan mælingar á mengun hófust á Íslandi nokkuð fyrir 1970. Búast má við sambærilegu gildum áfram ef veðuraðstæður verða áfram svipaður og gangur gossins hin sami. Þó þessi gildi séu einstök hér á landi eru sambærileg og jafnvel enn hærri gildi þekkt í stórum iðnaðarborgum. 

Miðað við mælingar síðustu daga má má búast við að hæstu gildi í byggð, í vindátt frá gosstöðvunum, geti verið á bilinu 500-1.000 µg/m3 (míkrógrömm á rúmmetra). Að mati Sóttvarnarlæknis ætti fullfrískt fólk ekki að finna fyrir neinum áhrifum eins og staðan er um þessar mundir en ætti engu að síður að forðast mikla áreynslu utan dyra. Fólk sem er viðkvæmt fyrir eins og börn og fullorðnir með astma og aðra sjúkdóma í öndunarfærum eða hjartasjúkdóma getur fundið fyrir óþægindum og ætti að forðast mikla áreynslu. Fólk sem notar innöndunarlyf vegna lungnasjúkdóma gæti þurft að auka lyfjaskammtinn í samráði við sinn lækni. Mikilvægt er að sjúklingar hugi að því að hafa lyf sín tiltæk. Öndum um nef í stað þess að anda gegnum munn dregur úr áhrifum brennisteinsdíoxíðs.

Ekki er hægt að útiloka að gildi verði hærri en 1.000 µg/m3 og því mikilvægt að fólk fylgist með upplýsingum um mengunina. Miklar sveiflur geta verið á styrk mengunarinnar og eru vindátt og vindstyrkur ráðandi þættir að því gefnu að gosið sé stöðugt. 

Góðar upplýsingar eru um styrk mengunarinnar niður á Reyðarfirði vegna umhverfisvöktunar sem þar er í gangi en unnið er að því að koma upp mælum víðar eins og t.d. á Egilsstöðum. Um kvöldmatarleytið á laugardag óku starfsmenn Heilbrigðiseftirlits Austurlands með handmæla inn Fljótsdal, Jökuldal og niður á Reyðarfjörð. Í þeirri ferð mældist ekki styrkur inn á mælisviði mælanna sem er 290 µg/m3 en allt bendir til að á þeim tíma hafi mengunin verið minni en hún var mest um kl 15 á laugardeginum. 

Ítarefni

Til að útskýra af hverju nokkur mismunandi mörk eru í gildi varðandi brennisteinsdíoxíð í stað þess að vera með ein alsherjarmörk er rétt að útskýra hugsunina bak við mörkin. 

Áhrif loftmengunar á heilsu fólks er háð tveimur þáttum sem verða ekki aðskildir. Það eru annar vegar styrkur mengunar og hins vegar það tímabil sem mengunin stendur yfir. Margfeldi þessara tveggja þátta er kallað útsetning (exposure). Þannig getur verið að mengunartoppur sem hefur mjög háan styrk en stendur stutt yfir hafi óveruleg áhrif á heilsu fólks en að toppur sem hefur mun lægri styrk en varir lengi hafi meiri áhrif á heilsu. Þetta endurspeglast í hinum mismunandi mörkum. Þannig eru mengunarmörk SO2 fyrir klukkutímann 350 µg/m3 og fyrir sólarhringinn 125 µg/m3. Heilsuverndarmörk eru miðuð við alla hópa sem viðkvæmir eru fyrir mengun, þar með talið börn og því eru þau strangari en vinnuverndarmörk sem aðeins eru miðuð við vinnandi fólk og aðeins í 8 tíma á dag hluta vikunnar. 

Mæligildi laugardagsins 6.september á Reyðarfirði má sjá hér að neðan ásamt ýmsum mörkum sem í gildi eru. 

  • Sólarhringsmeðaltal á Reyðarfirð 6.sept var 152µg/m3. Heilsuverndarmörk fyrir sólarhring eru 125µg/m3 og leyfilegt er að fara yfir þau mörk þrisvar á ári. 
  • Hæsta klukkutímameðaltal á Reyðarfirði var 580 µg/m3. Heilsuverndarmörk fyrir klukkutíma eru 350µg/m3 og leyfilegt er að fara 24 sinnum yfir þau á ári. 
  • Hæsta 10 mínútna meðaltal á Reyðarfirði mældist 659µg/m3 en engin mörk eru um 10 mín meðaltal. 
  • Vinnuverndarmörk fyrir 8 tíma vinnudag eru 1300 µg/m3 en hámarksgildi fyrir hverjar 15 mínútur er 2600µg/m3. Vinna er ekki heimil ef gildi fer yfir 2600µg/m3 
  • Há gildi klukkustundargildi í menguðum iðnaðarborgum geta hlaupið á þúsundum µg/m3