Tillaga að starfsleyfi fyrir verksmiðjuna var auglýst á tímabilinu 19. maí til 9. júlí 2014. Auk opinberrar auglýsingar á tillögunni var hún sérstaklega send til umsagnar hjá umsækjanda, Heilbrigðiseftirliti Austurlands, Skipulagsstofnun og Vinnueftirlitinu.
Umhverfisstofnun bárust athugasemdir við tillöguna frá einum aðila og voru þær minniháttar. Breytingar á starfsleyfinu frá auglýstri tillögu voru því ekki miklar. Þar ber helst að nefna breytingu á grein 2.3 en þar er nú talað um afskurð og aukaafurðir í stað fiskúrgangs. Rekstraraðili hafði gert athugasemdir við fyrra orðalag en Umhverfisstofnun sá sér aðeins fært að verða við þessum óskum rekstraraðila eftir breytingar á lögum 55/2003 um meðhöndlun úrgangs sem samþykktar voru á Alþingi 16. maí 2014.
Að auki var bætt við grein 1.10 sem fjallar um umhverfisábyrgð en í samræmi við lög um umhverfisábyrgð nr.55/2012 þá ber rekstraraðili ábyrgð á umhverfistjóni eða yfirvofandi hættu á slíku tjóni af völdum atvinnustarfsemi.
Nánari upplýsingar um meðferð athugasemda eru í greinargerð sem fylgir fréttinni.
Nýja starfsleyfið öðlaðist gildi 17. september sl. og gildir til 17. september 2030.