Stök frétt

 

Grænt bókhald er verkfæri fyrir stofnanir til að fylgjast með þýðingarmestu umhverfisþáttunum í starfsemi stofnana. Að færa grænt bókhald auðveldar stofnunum að sjá hvar tækifæri eru til hagræðingar. Þar er m.a. farið yfir pappírskaup, sorphirðu, samgöngur, hita og rafmagn.

Áhugi stofnana á umhverfismálum hefur aukist mikið á síðustu árum sem má sjá á því að 40 stofnanir eru nú þátttakendur í Grænum skrefum í ríkisrekstri með yfir 100 starfsstöðvar.

Umhverfisstofnun fer með umsjón verkefnisins og veitir stofnunum aðstoð og ráðleggingar við gerð bókhaldsins.

Hægt er að hafa samband við Hólmfríði Þorsteinsdóttur til að fá frekari upplýsingar eða aðstoð við að koma verkefninu af stað holmfridur.th@ust.is.