Stök frétt

Frá mánudeginum 24. júlí næstkomandi til 8. ágúst skerðist skrifstofuþjónusta Umhverfisstofnunar vegna sumarleyfa starfsmanna. Lágmarksþjónustu verður sinnt á þessum tíma og aðeins þeirri sem telst óhjákvæmileg. Opnunartímar móttöku og skiptiborðs verða með hefðbundnum hætti.

Við hvetjum fólk til að heimsækja starfstöðvar okkar úti á landi, s.s. í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli, á Mývatni og í Vestmannaeyjum þar sem mikið er um að vera á sumrin og hægt að njóta óspilltrar náttúru um allt land.

Veiðikort fást á tímabilinu eingöngu afgreidd rafrænt í Þjónustugáttinni – Mínum síðum á ust.is með notkun debet- eða kreditkorts. Veiðikort greidd inn á bankareikning verða ekki afgreidd á tímabilinu.