Stök frétt

Líkur eru á að sýning um Hornstrandir verði sett upp í húsi sem rís á Ísafirði innan tíðar. Um ræðir samstarfsverkefni Umhverfisstofnunar, Ísafjarðarbæjar, Byggðasafns Vestfjarða og Upplýsingamiðstöðvar á Ísafirði.

Jón Smári Jónsson, sérfræðingur Umhverfisstofnunar á Ísafirði, segir að hugmyndir um sýninguna hafi kviknað fyrir efnahagshrunið 2008. Sitthvað hafi orðið til að fresta framkvæmdum síðan en nokkuð er liðið síðan húsgrunnur var steyptur við hlið Byggðasafnsins. Nú þarf að halda áfram með það verk, að sögn Jóns Smára.

Umhverfisstofnun hefur umsjón með friðlandinu á Hornströndum en svæðið hefur verið friðlýst síðan 1975. Allnokkur hluti ferðamenna sækir ár hvert í þá náttúrufegurð og stemmningu sem finnst á svæðinu, erlendir ferðamenn í meirihluta. Jón Smári segir það sína trú að glæsileg sýning um svæðið á Ísafirði gæti komið í staðinn fyrir ferðir út í friðlandið hjá hluta ferðamanna sem annars færu á staðinn. Æskilegt sé að halda ágangi í skefjum. Heimila ekki meiri umferð en svæðið ber. Því yrði sýning um Hornstrandir til mikilla bóta.

Þá segir Jón Smári sína reynslu af landvarðarstörfum í friðlandinu spegla vel að ferðamenn fagni því að hafa starfsmenn í kringum sig í íslenskri náttúru, þar sem hægt sé að spyrja spurninga og leita ráðgjafar. Umgengni í friðlandinu sé almennt góð en fara þurfi mjög varlega, einkum á tilteknum tímum ársins.

Landvarðavikum á Hornströndum var fjölgað mjög í sumar frá fyrra ári og veitir ekki af að sögn Jóns Smára.

Mynd: Jón Smári við húsgrunninn á Ísafirði þar sem m.a. er stefnt að sýningu um Hornstrandir.