Stök frétt

Umhverfisstofnun, Katla Geopark og Rangárþing eystra standa að kynningarfundi næsta mánudag um stjórnunar- og verndaráætlun fyrir náttúruvættið Skógafoss. Fundurinn er öllum opinn og fer fram 19. febrúar kl. 15:00-17:30 í Skógasafni.

Dagskráin er eftirfarandi:

 

15:00                        Fundur settur

 15:00-15:15            Hvað er stjórnunar- og verndaráætlun?

Guðbjörg Gunnarsdóttir, Umhverfisstofnun

 15:15-15:25             Deiliskipulag Ytri- Skóga. Anton Kári Halldórsson, skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþing eystra

 15:25-15:40            Hvernig nýtist stjórnunar- og verndaráætlun fyrir náttúruvættið? Hákon Ásgeirsson, Umhverfisstofnun

 15:50-17:00            Hópavinna og umræður

 Umræðum verður skipt upp í fjögur þemu:

 

  • Hvernig viðhöldum við verndargildi svæðisins?
  • Hvernig á þjónustu, umsjón og fræðslu að vera háttað?
  • Hvaða innviðir eiga að vera til staðar?
  • Hvernig á öryggismálum að vera háttað?

17.00-17.30            Samantekt og umræður.

Fundarslit