Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur móttekið tilkynningu ArcticLAS ehf. um breytingu á starfsemi, dags. 9. maí 2018. Stofnunin hefur þann 5. október sl. samþykkt notkun nýrra stofna músa við starfsemi í starfsstöð leyfishafa við eins og þeim er lýst í tilkynningu leyfishafa og í gögnum sem Umhverfisstofnun hefur móttekið. Ekki er um að ræða breytingu á áhættumati né afmörkunarflokki og krefst nýting nýrra frumulína því ekki breytingar á starfsleyfi skv. gr. 1.4 starfsleyfis gefið út 27. ágúst 2014. Leyfishafa er hins vegar skylt að tilkynna Umhverfisstofnun um slíkar breytingar og hefur gert það á fullnægjandi hátt.

Þar sem um var að ræða minniháttar breytingu á starfsemi, með nýtingu nýrra stofna músa, og enga breytingu á starfsaðstöðu rannsókna, var ekki þörf á umsöng frá Vinnueftirlitinu en ráðgjafanefnd um erfðabreyttar lífverur var látin vita af breytingunni og hafði engar athugasemdir. 

Samþykki við notkun nýrra stofna músa við starfsemi ArcticLAS