Stök frétt

Fimmtudaginn 28. febrúar nk. mun Umhverfisstofnun kynna nýtt verkfæri til að meta ástand áfangastaða innan friðlýstra svæða. Með verkfærinu er búið að meta og skrá yfir 100 áfangastaði. Í skýrslu sem gefin er út um matið, er að finna upplýsingar um hvern áfangastað fyrir sig og tillögur að úrbótum. Jafnframt hafa verið teknir saman listar yfir þau svæði sem standa höllum fæti (rauðlistuð) og þau svæði sem standa vel.  Þetta verkfæri er gert að koma í stað rauðlistans sem gefinn var út um nokkurra ára skeið en er þó unninn með allt öðrum hætti.

Fundurinn hefst klukkan 9:00 og fer fram í Hvammi á Grand hótel. Boðið verður upp á veitingar frá klukkan 8:30.

Dagskrá:

9:00 – 9:10          Ávarp ráðherra                                                            

Guðmundur Ingi Guðbrandsson

9:10 – 9:25          Kynning á ástandsmatsverkfærinu                          

Jón Björnsson, þjóðgarðsvörður, Umhverfisstofnun

9:25 – 9:55          Hvaða upplýsingar koma fram í ástandsmatsskýrslunni og rauði listinn                  

Ólafur A. Jónsson, sviðsstjóri Umhverfisstofnun

9:55 – 10:10          Ástandsmatsverkfærið í víðara samhengi           

Óskar Jósefsson,  framkvæmdarstjóri Stjórnstöð ferðamála

10:20       Fyrirspurnir

 

Fundarstjóri: Edda Kristín Eiríksdóttir, sérfræðingur Umhverfisstofnun

Hægt verður að fylgjast með fundinum í gegnum streymi.

Myndin er af Skógafossi (Wikimedia Commons)