Stök frétt

Landbúnaðarháskóli Íslands heldur námskeið um meðferð varnarefna dagana 4. - 8. mars n.k. að Keldnaholti í Reykjavík. Námskeiðið er ætlað þeim sem hyggjast nota varnarefni í atvinnuskyni, annað hvort við eyðingu meindýra eða í landbúnaði eða garðyrkju. Námskeiðinu er skipt upp í þrjá hluta fyrir eftirfarandi markhópa:

  • Þá sem hyggjast gerast ábyrgðarmenn í markaðssetningu varnarefna,
  • Þá sem hyggjast nota varnarefni í landbúnaði og garðyrkju, þ.m.t. garðaúðun,
  • Þá sem hyggjast nota varnarefni við eyðingu meindýra.

Hægt er að taka einstaka hluta námskeiðsins eða alla hluta í heild sinni. Námskrá námskeiðsins byggist á ákvæðum í reglugerð um meðferð varnarefna. Til þess að öðlast þau réttindi sem námskeiðið veitir þarf að standast próf í lok námskeiðs.

Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Landbúnaðarháskóla Íslands, einnig er hægt að senda tölvupóst á endurmenntun@lbhi.is.

Skráning fer fram hér: www.lbhi.is/namskeid

Umhverfisstofnun gefur út notendaleyfi fyrir þá sem kaupa og nota varnarefni í atvinnuskyni. Þeir sem nota varnarefni til eyðingar meindýra skulu hafa notendaleyfi fyrir útrýmingarefnum og þeir sem nota varnarefni í landbúnaði og garðyrkju þ.m.t. garðaúðun skulu hafa notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörum.