Stök frétt

Undanfarið hafa fulltrúar Umhverfisstofnunar, landeigenda og sveitarfélags Skaftárhrepps unnið að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir náttúruvættið Dverghamra. 

Drög að áætluninni er hér með lögð fram til kynningar.

Dverghamrar eru stuðlabergshamrar úr blágrýti og staðsettir austan við Foss á Síðu. 
Dverghamrar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1987. Myndunarsaga þeirra er merkileg og hafa þeir jarðfræði- og sögulegt verndargildi sem og fræðslugildi.

Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Dverghamra er ætlað að vera stefnumótandi skjal, unnið í samvinnu við landeigendur og sveitarfélag og er hugsað sem stjórntæki til að móta framtíðarsýn svæðisins. Markmiðið með gerð hennar er að leggja fram stefnu um verndun Dverghamra og hvernig viðhalda skuli verndargildi svæðisins þannig að sem mest sátt ríki um. Í áætluninni er lögð fram stefnumótum til 10 ára, ásamt aðgerðaáætlun til fimm ára. 

Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir náttúruvættið auk auglýsingar um friðlýsingu svæðisins má sjá hér.

Frestur til að skila inn athugasemdum og ábendingum er til 8. júlí nk. 

Hægt er að skila inn athugasemdum á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með því að senda póst til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.

Nánari upplýsingar veitir Þórdís Björt Sigþórsdóttir, thordis.sigthorsdottir@umhverfisstofnun.is eða í síma 591-2000.