Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Bolungarvíkurkaupstað til móttöku og meðhöndlun úrgangs í landi Hóls í Bolungarvík. Samkvæmt tillögunni er heimilt að taka á móti allt að 500 tonnum af úrgangi til jarðgerðar og urðunar á óvirkum úrgangi sem er í samræmi við eldra starfsleyfi. Tillagan ásamt umsókn rekstraraðila og öðrum umsóknargögnum verður aðgengileg á vefsíðu Umhverfisstofnunar á tímabilinu 13. júní 2019 til og með 15. júlí 2019 og gefst á þeim tíma tækifæri til að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.
Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. rg. nr. 550/2018.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 15. júlí 2019.

Tengd skjöl:
Tillaga að starfsleyfi
Umsókn um starfsleyfi
Undanþágubeiðni, botnþétting
Undanþágubeiðni, fjarlægðarmörk
Sýnatökuáætlun