Stök frétt

Umhverfisstofnun, ásamt landeigendum og sveitarfélaginu Fljótsdalshéraði, hefur uppi áform um friðlýsingu jarðanna Heyskála, Hrafnabjarga og Unaós. Áform um friðlýsingu eru kynnt í samræmi við málsmeðferð 2. og 3. mgr. 36. gr. náttúruverndarlaga, sbr. 2. mgr. 38. gr. laganna en gert er ráð fyrir að svæði sem ekki eru á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár séu kynnt sérstaklega.

Frestur til að skila athugasemdum við áformin er til og með 18. september 2019. Frekari upplýsingar má finna hér.

Athugasemdum við áformin má skila á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.