Stök frétt

Sigtún þróunarfélag og Umhverfisstofnun hafa gert með sér samning sem gengur út á að byggingar nýs miðbæjarkjarna á Selfossi verði umhverfisvottaðar með Svansvottun. Samningur um þessa framtíðarsýn var undirritaður í dag. Markmið samningsins er að skilgreina þær meginkröfur sem byggingarnar verða að uppfylla til að teljast vottunarhæfar sem og hlutverk samningsaðila í ferlinu. Þetta er í fyrsta skipti sem undirritað er samkomulag um Svansvottun klasa húsa hér á landi, en alls er um að ræða tugi húsa.

Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna og hefur svansvottun verið í mikilli sókn hin síðari ár, ekki síst hér á landi. Mikil umhverfisáhrif fylgja byggingargeiranum, en með Svansvottun húsnæðis er markvisst unnið að því að minnka umhverfisáhrif framkvæmdanna og því voru viðmið Svansins fyrir nýbyggingar þróuð 2003. Tvær byggingar hafa nú þegar hlotið svansvottun hér á landi og hefur stofnunin í kjölfarið orðið vör við vitundarvakningu í málaflokknum. Í dag ná viðmið Svansins fyrst og fremst til íbúðarhúsnæðis og skólabygginga og eru því ekki til viðmið fyrir allar tegundir bygginga.

Nýr miðbæjarkjarni Selfoss samanstendur af blandaðri byggð þar sem gert er ráð fyrir íbúðarhúsnæði í bland við atvinnuhúsnæði. Þær byggingar verkefnisins sem falla ekki undir núverandi viðmið Svansins fyrir nýbyggingar eru aðallega hótel, skrifstofur og þjónustubyggingar. Uppbyggingin mun hins vegar fylgja viðmiðum Svansins fyrir allar nýbyggingar verkefnisins en vottunin byggist á tilteknum fjölda skyldukrafna auk lágmarksfjölda stiga. Ekki eru gefnar einkunnir líkt og í öðrum vottunarkerfum sem þekkjast hérlendis því ef byggingin stenst allar skyldukröfur, þ.m.t. lágmarks fjölda stiga telst hún Svansvottuð. Á byggingartíma munu starfsmenn Umhverfisstofnunar m.a. rýna gæðaferla, hönnun, notkun byggingaefna og efnavöru og fylgjast með úrgangsflokkun.

Jafnframt undirritaði Sigtún viljayfirlýsingu við verktakann sem reisir húsin í miðbænum, JÁVERK, um innleiðingu umhverfisstjórnunarkerfis og verkferla sem tryggi að verkframkvæmd og efnisnotkun uppfylli kröfur Svansins fyrir nýbyggingar.

Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, segir: „Með verkefninu sem snýr bæði að heilsu fólks sem mun starfa og búa í þessum húsum sem og í heildrænu umhverfislegu tilliti er um nýtt og spennandi skref að ræða. Ég fagna að sveitarfélagið Árborg og Sigtún Þróunarfélag sýni þetta frumkvæði. Það er til mikillar eftirbreytni.“

Leó Árnason, framkvæmdastjóri Sigtúns Þróunarfélags segir: “Þessi samningur við Umhverfisstofnun er stór áfangi í því markmiði okkar að gera miðbæinn eins umhverfisvænan og okkur er unnt. Við erum einnig að vinna að því að votta deiliskipulagið með Breeam vistvottun og stefnum að því að allur rekstur í miðbænum verði umhverfisvottaður með Svaninum eða öðru viðeigandi umhverfismerki.”

Á myndinni eru Leó Árnason, frkvstj. Sigtúns, Gylfi Gíslason forstjóri JÁVERKS, Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, og Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Árborgar, að lokinni undirritun undir berum himni. Framkvæmdasvæðið í bakgrunni. (Mynd: dfs.is/gpp)