15. október.2019 | 11:22
Opinn kynningarfundur á Reyðarfirði
Umhverfisstofnun boðar til opins kynningarfundar um niðurstöður eftirlits Umhverfisstofnunar hjá Alcoa Fjarðaáli og umhverfisvöktunar í Reyðarfirði fimmtudaginn 31. okt. næstkomandi í Þórðarbúð v. Austurveg, Reyðarfirði klukkan 16:30.
Dagskrá:
- Halla Einarsdóttir frá Umhverfisstofnun kynnir eftirlit Umhverfisstofnunar.
- Einar Halldórsson frá Umhverfisstofnun kynnir niðurstöður úr eftirliti með Alcoa Fjarðaáli.
- Guðrún Óskarsdóttir frá Náttúrustofu Austurlands kynnir niðurstöður umhverfisvöktunar.
- Guðmundur Sveinsson Kröyer frá Alcoa Fjarðaáli kynnir losun á gróðurhúsalofttegundum frá Alcoa Fjarðaáli.
Umræður að loknum framsögum. Allir velkomnir.