Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn um starfsleyfi dagsett þann 7. febrúar 2020 frá fyrirtækinu Íslenska kalkþörungafélagið ehf. staðsett á Bíldudal í Vesturbyggð. Um er að ræða  aukningu kalkþörungaverksmiðjunnar á framleiðslu kalkafurða úr 85.000 tonnum í 120.000 tonn árlega.  

Unnið er úr umsókn og að gerð starfsleyfistillögu.

Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.

Ákvörðun um matsskyldu.