Stök frétt

Undanfarið hafa fulltrúar Umhverfisstofnunar, landeigenda og sveitarfélagsins Mýrdalshrepps unnið að endurskoðun á stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið Dyrhólaey.

Drög að áætluninni eru hér með lögð fram til kynningar. Í áætluninni er lögð fram stefnumótum til 10 ára, ásamt hlaupandi aðgerðaáætlun til þriggja ára.

Dyrhólaey er um 120 metra hár höfði sem gengur í sjó fram við suðurströnd landsins. Syðsti oddi eyjunnar nefnist Tóin og er syðsti landfasti hluti Íslands. Dyrhólaey var friðlýst sem friðland árið 1978 og er það 151,43 ha að flatarmáli. Verndargildi Dyrhólaeyjar felst í fjölbreyttu fuglalífi svæðisins, stórbrotnu útsýni og landslagi. Leiðarljós áætlunarinnar er að varðveita samspil landslags, lífríkis og menningar.

Frestur til að skila inn ábendingum og athugasemdum varðandi tillöguna er til og með 1. september 2020. Athugasemdum má skila á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með því að senda póst til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.

Nánari upplýsingar má finna hér