Stök frétt

 Umhverfisstofnun hefur framlengt lokun friðlandsins Gróttu í Seltjarnanesbæ fyrir umferð gesta til 31. júlí n.k. Samkvæmt 25. gr. a. laga um náttúruvernd nr. 60/2013 getur Umhverfisstofnun takmarkað umferð eða lokað svæði vegna sérstaklega viðkvæms ástands náttúru.

Umrætt svæði er skilgreint sem friðland skv. auglýsingu nr. 13/1984. Samkvæmt auglýsingunni er umferð óviðkomandi fólks bönnuð á tímabilinu 1. maí til 15. júlí. Umhverfisstofnun telur mikilvægt að framlengja lokunina þar sem hætta er á verulegri röskun á fuglalífi ef svæðið verður opnað á þeim tíma sem tilgreindur er í auglýsingunni, enda um viðkvæmt tímabil fuglalífs að ræða. Svæðið nálægt Gróttu, sem og Grótta er vinsælt útivistarsvæði og því mikilvægt að bregðast við sem fyrst

Grótta Closed Until 31st of July

The Environment Agency of Iceland has decided to extend the closing time in Grótta nature reserve in Seltjarnanesbær until 31st of July 2020.

According to the protection act for this reserve the access to the area is usually closed from 1st of May until the 15th of July for protection of birdlife.

Due to danger of disturbance of birdlife leading to impact on nesting success and chick survival, the area will be closed until the end of July.

Entering the area is strictly forbidden.