Stök frétt

Seinasti veiðidagur haustveiða var sunnudagurinn 20. september. Kvóti þessa árs var 1325 dýr, 805 kýr og 520 tarfar.  Felld voru 1264 dýr og ekki náðist að fella 11 kýr og 2 tarfa af útgefnum kvóta sem veiða átti nú í haust. 48 kýr eru svo í úthlutuðum leyfum í nóvember á svæði 8 og svæði 9.

Veiðarnar gengu vel þó þær færu eins og áður frekar rólega af stað. Mikið af kvótanum var felldur eftir 20. ágúst. Veðrið var veiðimönnum einstaklega hagstætt þetta veiðitímabilið og lítið um þoktíð. Seinustu vikur veiðitímans var veðrið gott á öllum svæðum.

Alltaf er töluvert um að leyfum sé skilað inn eftir að veiðitímabil hefst en byrja má að veiða tarfa 15. júlí og kýr 1. ágúst. 74 einstaklingar þáðu leyfi sem þeim voru úthlutuð á biðlista eftir að veiðar hófust og 212 einstaklingum var boðið að taka leyfi. Töluverð óvissa var í sumar um hvort Covid veiran myndi setja mark sitt á tímabilið að einhverju leyti, en er það mat okkar hjá Umhverfisstofnun að svo hafi ekki verið. Ekki var mörgum leyfum skilað inn sem rekja má til sóttvarna eða takmarkana tengdum þeim.  Nokkrir veiðileyfishafar búsettir erlendis skiluðu þó inn sínum leyfum af þeim sökum.

Nánari upplýsingar um veiðar hvers svæðis má sjá í töflu um lokastöðu veiða.