Stök frétt

Umhverfisstofnun í samstarfi við Matvælastofnun hélt réttindanámskeið fyrir verðandi heilbrigðisfulltrúa dagana 1. til 12. febrúar 2021. Námskeiðið var haldið í gegnum fjarbúnað. Fyrri vikuna var farið yfir þætti er varða lagaumhverfi heilbrigðiseftirlits, stjórnsýslu, hollustuhætti, eftirlit með efnavörum og mengunarvarnir og seinni vikuna var farið yfir þætti er varða matvælalöggjöf og matvælaeftirlit.

Alls voru fluttir 49 fyrirlestrar um efni sem tengjast starfi heilbrigðisfulltrúa. Námskeiðið sóttu alls 14 verðandi heilbrigðisfulltrúar. Með því að halda námskeiðið með rafrænum hætti gafst starfandi heilbrigðisfulltrúum og starfsmönnum Umhverfisstofnunar og Matvælastofnunar kleift að nýta það til sí- og endurmenntunar.

Til þess að bera starfsheitið heilbrigðisfulltrúi, þarf leyfi umhverfis- og auðlindaráðherra þarf. Eitt af skilyrðum þess er að viðkomandi að hafi sótt námskeið um stjórnsýslu, lög og reglugerðir sem heilbrigðisfulltrúum ber að sjá um að sé framfylgt.