Stök frétt

Landvarðanemar 2021

Nú er í gangi á vegum Umhverfisstofnunar námskeið fyrir verðandi landverði. Í ár var námskeiðið aðlagað að fjöldatakmörkunum og það allt kennt í gegnum fundarbúnaðinn Teams.
Fyrir utan eitt skilaverkefni sem nemendur vinna saman og skila sem fræðslugöngu. Í stað þess að fá alla nemendurna á einn stað var tekin sú ákvörðun að skipta þeim í hópa eftir póstnúmerum og hittust þeir því á 4 stöðum vítt og breitt um landið. 

Fjölmennasti hópurinn var á Þingvöllum og skal það tekið fram hér að þau voru í tveimur aðskildum hópum nema rétt á meðan myndin var tekin. Aðrir nemendur hittust í Mývatnssveit, í Þjóðgarðinum Snæfellsjökull og á Dynjanda. 

Hér má sjá myndir af nemendum ásamt leiðbeinendum sem koma frá Umhverfisstofnun, Þjóðgarðinum á Þingvöllum og Vatnajökulsþjóðgarði. 

Nemendur ásamt leiðbeinendum á Þingvöllum

Landvarðanemar, Þingvöllum

Nemendur ásamt leiðbeinendum við Dynjanda

Landvarðanemar, Dynjanda

Nemendur ásamt leiðbeinendum í Þjóðgarðinum Snæfellsjökull

Landvarðanemar, Snæfellsjökull