Stök frétt

Mynd: Jan Kopřiva - Unsplash

Landbúnaðarháskóli Íslands heldur námskeið um meðferð plöntuverndarvara og útrýmingarefna dagana 8. - 12. mars n.k. að Keldnaholti í Reykjavík. Námskeiðið er ætlað þeim sem hyggjast nota plöntuverndarvörur eða útrýmingarefni í atvinnuskyni, annað hvort við eyðingu meindýra eða í landbúnaði eða garðyrkju. Námskeiðinu er skipt upp í þrjá hluta fyrir eftirfarandi markhópa:

  • Þá sem hyggjast gerast ábyrgðarmenn í markaðssetningu plöntuverndavara eða útrýmingarefna,
  • Þá sem hyggjast nota plöntuverndarvörur í landbúnaði og garðyrkju, þ.m.t. garðaúðun,
  • Þá sem hyggjast nota útrýmingarefni við eyðingu meindýra.

Hægt er að taka einstaka hluta námskeiðsins eða alla hluta í heild sinni. Námskrá námskeiðsins byggist á ákvæðum í reglugerð um meðferð varnarefna. Til þess að öðlast þau réttindi sem námskeiðið veitir þarf að standast próf í lok námskeiðs.

Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Landbúnaðarháskóla Íslands, einnig er hægt að senda tölvupóst á endurmenntun@lbhi.is.

Skráning fer fram hér: https://endurmenntun.lbhi.is/varnarefni/

Umhverfisstofnun gefur út notendaleyfi fyrir þá sem kaupa og nota notendaleyfisskyldar vörur. Þeir sem nota útrýmingarefni til eyðingar meindýra skulu hafa notendaleyfi fyrir útrýmingarefnum og þeir sem nota plöntuverndarvörur í landbúnaði og garðyrkju þ.m.t. garðaúðun skulu hafa notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörum.