Stök frétt

Mynd tekin af vef Benchmark Genetics (Stofnfisks)

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Benchmark Genetics Iceland hf. (áður Stofnfiskur hf.) Um er að ræða landeldi í Kirkjuvogi, Höfnum, þar sem hámarks lífmassi á hverjum tíma má ekki fara yfir 90 tonn.

Að mati Umhverfisstofnunar munu helstu áhrif vera í formi aukins magns næringarefna bæði á föstu formi og uppleystu sem munu verða losuð í viðtakann. Áætluð losun næringarefna verður undir þeim mörkum sem almennt er miðað við varðandi losun í sjó. Í starfsleyfi eru ákvæði þar sem hægt er að gera aukna kröfum um hreinsun fari rekstaraðili yfir þau mörk sem sett hafa verið í leyfið.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202002-515. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 26. mars 2021.
Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl:
Umsókn um starfsleyfi
Tillaga að starfsleyfi Benchmark Genetics Iceland hf.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu